Einn leikur fer fram í Olísdeild kvenna í handknattleik í kvöld. Fram sækir ÍR heim í Skógarsel og verður flautað til leiks klukkan 19.30. Fram er í öðru sæti Olísdeildar þegar liðið á þrjá leiki eftir. ÍR-liðið hefur sótt mjög í sig veðrið eftir áramótin og situr í fjórða sæti deildarinnar eftir sigur á Selfossi á dögunum. Bæði lið þurfa á stigunum að halda sem eru boði til þess að treysta stöðu sína í deildinni. Nokkuð sem er uppskrift að spennandi leik.
Í Grill 66-deild kvenna mætast Valur2 og FH á Hlíðarenda klukkan 19.30.
Báðir leikir verða sendir út á Handboltapassanum.
Leikir kvöldsins
Olísdeild kvenna:
Skógarsel: ÍR – Fram, kl. 19.30.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Grill 66-deild kvenna:
N1-höllin: Valur2 – FH, kl. 19.30.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.