- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Semja ótrauðir við leikmenn þrátt fyrir óljósa framtíð

Þýska félagið HSG Wetzlar stendur þessa dagana í ströngu við að semja við leikmenn fyrir karlaliðið, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, þrátt fyrir að ekki liggi fyrir hvort Wetzlar muni leika áfram á meðal þeirra bestu eða í B-deildinni á...

Haukur og Elliði Snær í liði umferðarinnar í fjórða sinn

Haukur Þrastarson, leikstjórnandi Rhein-Neckar Löwen, og Elliði Snær Viðarsson, línumaður VfL Gummersbach, eru báðir í úrvalsliði 29. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa staðið sig vel í leikjum með liðum sínum síðastliðið fimmtudagskvöld. Haukur átti magnaðan leik fyrir Rhein-Neckar...

Ísabella verður um kyrrt hjá HK

Ísabella Haraldsdóttir, ungur og efnilegur leikstjórnandi hjá HK, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til næstu tveggja ára, sumarsins 2028. Ísabella er einungis 16 ára gömul og lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk liðsins, þrjá talsins, í...
- Auglýsing -

Þýski landsliðsmaðurinn til PSG

Renars Uscins, örvhent skytta Hannover-Burgdorf og þýska landsliðsins, gengur til liðs við franska stórliðið PSG þegar samningur hans rennur út sumarið 2027. Þessu heldur þýski miðillinn Sport Bild fram fullum fetum. Þar segir að Uscins, sem er 23 ára gamall,...

Bjarki Már vonast til þess að draumurinn rætist

Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson, leikmaður One Veszprém í Ungverjalandi, var nýverið valinn mikilvægasti leikmaður bikarhelgarinnar í Ungverjalandi þegar liðið vann bikarmeistaratitilinn. Hann á sér draum um að komast í undanúrslitahelgina, „Final Four,“ í Meistaradeild Evrópu. Bjarki Már hefur aldrei á...

Jón Bjarni mætir galvaskur til leiks

FH-ingurinn Jón Bjarni Ólafsson verður gjaldgengur með liðinu í kvöld þegar FH og Valur mætast öðru sinni í úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik í Kaplakrika. Jón Bjarni hlaut útilokun með rauðu og bláu spjaldi snemma á upphafsmínútum síðari hálfleiks...
- Auglýsing -

Tvö frönsk lið í undanúrslitum – ekkert danskt

Tvö frönsk lið leika unnu sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í handknattleik um helgina þegar síðari viðureignir átta liða úrslita fóru fram. Franska meistaraliðið Metz hefur átt sæti í undanúrslitum af og til undanfarin ár en meiri athygli...

Naumt tap í fyrsta undanúrslitaleiknum

Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof töpuðu með tveggja marka mun fyrir Malmö HK, 31:29, í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Leikið var í Malmö. Næsti leikur fer fram í Partille...

Stórsigur Stjörnunnar – oddaleikur á miðvikudag

Oddaleikur verður á milli Stjörnunnar og Gróttu um keppnisrétt í Olísdeild kvenna í handknattleik. Stjarnan jafnaði metin í úrslitum liðanna í umspilinu í dag með stórsigri í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi, 36:24, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í...
- Auglýsing -

Magdeburg færist skrefi nær meistaratitlinum

SC Magdeburg færðist skrefi í dag nær þýska meistaratitlinum í handknattleik karla með baráttusigri á Stuttgart, 30:26, í Porsche Arena í Stuttgart. Magdeburg hefur þar með sjö stiga forskot í efsta sæti deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir. Leikmenn Magdeburg...

Umspil Olís kvenna 2026: leikjadagskrá og úrslit

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik sem hófst sunnudaginn 29. mars. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem keppninni vindur fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum. Leikir umspilsins verða sendir út á Handboltapassanum. Úrslit 16. apríl: Stjarnan - Grótta...

Hafþór Már framlengir samning sinn til tveggja ára

Hafþór Már Vignisson hefur framlengt samning sinn við Þór til næstu tveggja ára eftir því sem fram kemur í tilkynningu handknattleiksdeildar félagsins í dag. Hafþór Már er einn af uppöldum leikmönnum félagsins. Hann gekk á ný til liðs við...
- Auglýsing -

Rúnar vann uppgjör Þórsaranna

Rúnar Sigtryggsson hafði betur er hann mætti fyrrverandi samherja sínum og lærisveini úr Þór Akureyri, Arnóri Þór Gunnarssyni, í þýsku 1. deildinni. Þórsararnir þjálfara sitt hvort liðið. Rúnar er við stjórnvölin hjá Wetzlar sem lagði Bergischer-liðið sem Arnór Þór...

Tap í úrslitaleiknum í Austurríki

Íslendingaliðið Alpla Hard tapaði fyrir Förthof UHK Krems í úrslitaleik austurrísku bikarkeppninnar í handknattleik karla í gærkvöld, 24:21. Krems var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14:12. Leikið var í Sport Arena Wien. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Alpla...

Sigurður hefur gengið til liðs við Hauka

Haukar hafa gert samning við línumanninn sterka Sigurð Jefferson Guarino um að leika með liðinu næstu árin. Sigurður kemur til liðs við Hauka frá HK þar sem hann er uppalinn og hefur verið lykilmaður undanfarin ár. Sigurður hefur undanfarin...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -