- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Vill binda lóð við fótinn á Guðjóni Val

Daniel Duhr, dálkahöfundur hjá þýska miðlinum Handball World, tileinkar dálk sinn á vefnum í dag Guðjóni Val Sigurðssyni, þjálfara VfL Gummersbach. Þar sparar Duhr ekki stóru orðin og hvetur félagið til þess að framlengja samning Guðjóns Vals tafarlaust. Ellegar megi...

Naumt tap í annarri umferð

Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði ekki mark fyrir Skara HF þegar liðið tapaði með eins marks mun á heimavelli, 26:25, í annarri umferð undanúrslita úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í gær. Lena Margrét gaf tvær stoðsendingar. Staðan er nú jöfn, hvort lið...

Á brattann er að sækja hjá Íslendingum

Það er svo sannarlega á brattann að sækja hjá Íslendingunum og liðum þeirra í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Bæði IFK Kristianstad og IF Sävehof hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í undanúrslitum. IFK tapaði fyrir Alingsås á...
- Auglýsing -

Sigur eftir að hafa stigið krappan dans

Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen eru komnir í fína stöðu eftir annan sigur á BSV Bern, 29:28, í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Sviss í kvöld. Leikmenn Kadetten stigu krappan dans í leiknum lengst af en tókst að...

Magdeburg í vænlegri stöðu – Sporting stendur lakar að vígi

Evrópumeistarar SC Magdeburg eru komnir að minnsta kosti með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir öruggan sigur á ungverska liðinu Pick Szeged, 35: 28, í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum sem fram fór í Szeged í...

Andri Már getur gert föður sínum stóran greiða

Andri Már Rúnarsson, Viggó Kristjánsson og liðsfélagar þeirra í HC Erlangen heimsækja Blæ Hinriksson og félaga í DHfK Leipzig í þýsku 1. deildinni annað kvöld. Leikurinn gæti haft tilfinningalegt gildi fyrir Andra Má af ýmsum ástæðum. Andri Már lék nefnilega...
- Auglýsing -

Dana Björg kveður Volda

Landsliðskonan Dana Björg Guðmundsdóttir kvaddi norska félagið Volda formlega á samfélagsmiðlum í vikunni. Volda hefur lokið leik í B-deildinni á tímabilinu, hafnaði þar í fimmta sæti. Dana Björg er á förum til stórliðsins Larvik, sem er á meðal sterkustu liða...

Guðjón Valur fær nýjan þjálfara til aðstoðar

Þýska félagið VfL Gummersbach hefur ráðið Portúgalann André Teixeira í starf markmannsþjálfara. Teixeira tekur við starfinu í sumar og skrifaði undir tveggja ára samning. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins. Hann starfar sem stendur sem markmannsþjálfari HC Erlangen, sem Viggó...

Tveir nýliðar í hópnum hjá Alfreð

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, hefur tilkynnt hvaða 17 leikmenn munu taka þátt í tveimur vináttulandsleikjum gegn Danmörku um miðjan næsta mánuð. Tveir nýliðar eru í hópnum. Nýliðarnir tveir eru Moritz Sauter, liðsfélagi Einars Þorsteins Ólafssonar hjá HSV Hamburg, og...
- Auglýsing -

Dagur á blaði hjá pólska stórliðinu

Dagur Sigurðsson, þjálfari króatíska karlalandsliðsins, er einn þeirra sem koma til greina sem arftaki Spánverjans Talant Dujshebaev við þjálfun pólska stórliðsins Industria Kielce. Dujshebaev lét óvænt af störfum í síðustu viku. Samningur hans við Kielce átti að renna út næsta...

Ljónin vilja Elvar Örn

Rhein-Neckar Löwen hefur mikinn áhuga á því að semja við landsliðsmanninn Elvar Örn Jónsson, sem er leikmaður stórliðs SC Magdeburg. Selfyssingurinn yrði hugsaður sem arftaki Sebastian Heymann, sem gengur til liðs við TSV Hannover-Burgdorf í sumar. Áætlað var að Heymann...

Sigur í fyrsta undanúrslitaleiknum

Elín Klara Þorkelsdóttir og samherjar í IK Sävehof fara vel af stað í undanúrslitaeinvígi við Höörs HK H 65 um sænska meistaratitilinn í handknattleik. Sävehof vann í kvöld með þriggja marka mun á heimavelli, 31:28, eftir að hafa verið...
- Auglýsing -

Semja ótrauðir við leikmenn þrátt fyrir óljósa framtíð

Þýska félagið HSG Wetzlar stendur þessa dagana í ströngu við að semja við leikmenn fyrir karlaliðið, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, þrátt fyrir að ekki liggi fyrir hvort Wetzlar muni leika áfram á meðal þeirra bestu eða í B-deildinni á...

Haukur og Elliði Snær í liði umferðarinnar í fjórða sinn

Haukur Þrastarson, leikstjórnandi Rhein-Neckar Löwen, og Elliði Snær Viðarsson, línumaður VfL Gummersbach, eru báðir í úrvalsliði 29. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa staðið sig vel í leikjum með liðum sínum síðastliðið fimmtudagskvöld. Haukur átti magnaðan leik fyrir Rhein-Neckar...

Bjarki Már vonast til þess að draumurinn rætist

Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson, leikmaður One Veszprém í Ungverjalandi, var nýverið valinn mikilvægasti leikmaður bikarhelgarinnar í Ungverjalandi þegar liðið vann bikarmeistaratitilinn. Hann á sér draum um að komast í undanúrslitahelgina, „Final Four,“ í Meistaradeild Evrópu. Bjarki Már hefur aldrei á...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -