- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olís kvenna

- Auglýsing -

Þrefaldir meistarar taka á móti KA í meistarakeppni HSÍ

Á laugardaginn verður leikið í meistarakeppni karla í handknattleik. Þá mætast Íslands-, bikar-, og deildarmeistarar Vals og KA í Origohöll Valsara við Hlíðarenda. Flautað verður til leiks klukkan 16. KA vann sér þátttökurétt í meistarakeppninni með því að leika...

Karen verður ekki með meisturunum á Ragnarsmótinu

Handknattleikskonan öfluga, Karen Knútsdóttir, leikur ekki með Íslandsmeisturum Fram á Ragnarsmótinu sem hefst í Sethöllinni á Selfossi annað kvöld. Karen tognaði í kálfa á dögunum og verður frá keppni í einhverjar vikur af þeim sökum. Karen sagði við handbolta.is í...

Stjarnan vann þriðja leikinn og UMSK-mótið um leið

Stjarnan fór með sigur úr býtum í UMSK-mótinu í handknattleik kvenna en liðið lék sinn þriðja og síðasta leik í kvöld og vann hann eins og tvo þá fyrri á mótinu. Stjarnan lauk þar með keppni með fullu húsi...
- Auglýsing -

Dagskráin: Stjarnan fær heimsókn

Einn leikur fer fram á UMSK-móti kvenna í handknattleik í kvöld þegar Grótta sækir Stjörnuna heim í TM-höllina í Garðabæ. Leikurinn hefst klukkan 18. Þetta verður fyrsti leikur Gróttuliðsins í mótinu. Stjarnan lýkur hins vegar keppni með þessari viðureign. Stjörnuliðið...

Mæta Ísraelsmönnum tvisvar í Eyjum – Harðarleiknum frestað fram í október

Báðar viðureignir ÍBV og ísraelska liðsins HC Holon í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni karla í handknattleik verða háðar í Vestmannaeyjum í næsta mánuði. Samkvæmt vef Handknattleikssambands Evrópu verður flautað til leiks í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum klukkan 16 laugardaginn 10. september...

Ásdís Þóra bætist í hópinn hjá Val

Handknattleikskonan Ásdís Þóra Ágústsdóttir hefur ákveðið að snúa heim til Vals á ný eftir rúmlega árslanga lánsdvöl hjá Lugi í Svíþjóð. Ásdís samdi við Lugi fyrir tveimur árum en varð fyrir því óláni að slíta krossband stuttu seinna í...
- Auglýsing -

Stjarnan er komin með tvo vinninga

Stjarnan stendur vel að vígi á UMSK-móti kvenna í handknattleik eftir að hafa lagt HK í kvöld með þriggja marka mun í annarri umferð mótsins, 32:29. Leikurinn fór fram í Kórnum. Stjarnan hefur þar með tvo vinninga eftir að loknum...

Dagskráin: UMSK-mótinu verður framhaldið

Einn leikur fer fram á UMSK-móti kvenna í handknattleik í dag. HK fær Stjörnuna í heimsókn í Kórinn og verður flautað til leiks klukkan 17.30. Þremur leikjum er lokið á mótinu en auk HK og Stjörnunnar senda Grótta og...

Molakaffi: Sigríður áttræð, Ásdís Þóra, Kristjana, Kristján Ottó, Elvar, Daníel, Poulsen

Áttræð er í dag Sigríður Sigurðardóttir fyrirliði Norðurlandameistara Íslands í handknattleik árið 1964 og leikmaður Vals. Sigríður er fyrsta konan sem kjörin var íþróttamaður ársins árið 1964 af Samtökum íþróttafréttamanna. Handbolti.is óskar Sigríði innilega til hamingju með stórafmælið. Ásdís...
- Auglýsing -

Eva Dís gengur til liðs við Stjörnuna

Eva Dís Sigurðardóttir, markvörður, hefur gengið til liðs við Stjörnuna og leikur með liðinu í Olísdeildinni á næsta keppnistímabili. Stjarnan tilkynnti um komu markvarðarins til félagsins í dag. Eva Dís á að koma í stað Tinnu Húnbjargar Einarsdóttur sem er...

UMSK-mótið: HK og Afturelding hefja leik

Flautað verður til leiks í UMSK-móti kvenna í handknattleik í kvöld. HK tekur á móti Aftureldingu í Kórnum klukkan 17.30. Nokkrir leikmenn HK-liðsins er nýkomnir til landsins eftir að hafa staðið í ströngu með U18 ára landsliðinu á heimsmeistaramótinu...

Ásdís leikur í sænsku úrvalsdeildinni

Handknattleikskonan Ásdís Guðmundsdóttir hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið Skara HF. Hún fylgir þar með í kjölfar samherja síns hjá KA/Þór, Aldísar Ástu Heimisdóttur, sem fyrr í sumar samdi við sama félag. Frá þessu greinir Vikudagur á Akureyri í morgun. Samningur...
- Auglýsing -

„Kaup og sölur“ hjá konunum?

Það er næsta víst, að eitthvað verður um „kaup og sölur“ í kvennaleikjum Íslands í Evrópukeppninni í handknattleik, eftir að dregið var í morgun, 19. júlí, í Evrópubikarkeppni EHF, þar sem þrjú lið eru með í keppninni og þurfa...

Talsverð ferðalög bíða íslensku liðanna þriggja

Bikarmeistarar Vals í handknattleik kvenna drógust á móti HC DAC Dunajska Streda frá Slóvakíu í fyrstu umferð Evrópubikarkeppninni í handknattleik þegar dregið var í morgun. KA/Þór mætir Gjoche Petrov-WHC Skopje frá Norður Makedóníu og ÍBV fékk grískt lið, O.F.N....

Þrjú íslensk lið verða í pottunum tveimur

Þrjú íslenska lið verða dregin út í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik á morgun. Valur verður í efri styrkleikaflokki en KA/Þór og ÍBV í þeim neðri en alls verða nöfn 54 liða í skálunum sem dregið er úr....
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -