Kvennalið Fram hefur orðið fyrir annarri blóðtöku á innan við viku en nú er ljóst að landsliðskonan Perla Ruth Albertsdóttir leikur ekki meira með liðinu á keppnistímabilinu. Perla Ruth staðfesti þetta við handbolta.is áðan.
„Ég á von á barni í apríl og mun því ekki leika meira með Fram á þessu tímabili,“ sagði Perla Ruth við handbolta.is. Lokaleikur hennar með Fram-liðinu var gegn Haukum 26. september.
Perla og eiginmaðurinn, Örn Þrastarson handknattleiksþjálfari á Selfossi, opinberuðu tíðindin á samfélagsmiðlum í gær með meðfylgjandi mynd.
Perla er ekki eini leikmaður Fram sem komin er í fæðingaorlof frá handboltanum. Nýverið eignaðist Karen Knútsdóttir dóttur og svo á Þórey Rósa Stefánsdóttir von á barni á næstunni.
Á dögunum kvaddi landsliðsmarkvörðurinn Hafdís Renötudóttir herbúðir deildar,- og bikarmeistaranna eftir að hafa skrifað undir samning við sænska úrvalsdeildarliðið Lugi.