- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Sanngjarn Valssigur í fyrsta úrslitaleiknum

Valur tók í kvöld forystuna í úrslitaeinvíginu við FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla með sigri í fyrsta leik liðanna, 37:33, í N1-höllinni á Hlíðarenda. Staðan var jöfn í hálfleik, 16:16. Næsta viðureign liðanna verður í Kaplakrika á mánudagskvöld...

Íslendingatríóið leikur til úrslita í bikarnum

Tumi Steinn Rúnarsson og liðsfélagar í Alpla Hard mæta Krems í úrslitaleik austurrísku bikarkeppninnar í handknattleik á morgun. Alpla Hard vann Handball Tirol, 32:27, í undanúrslitaleik í dag. Krems vann Hollabrunn, 33:19, í hinni viðureign undanúrslita. Tumi Steinn var markahæstur...

Handkastið stendur við umfjöllun sína

Handkastið hefur brugðist við yfirlýsingu stjórnar handknattleiksdeildar ÍR með nýrri frétt á síðu miðilsins. Þar kveðst Handkastið standa við umfjöllun sína um að tveir landsliðsmenn í kvennaliði ÍR hafi verið óánægðir með störf Grétars Áka Andersen þjálfara og að...
- Auglýsing -

Tólf ára þjálfaratíð Dujshebaev hjá Kielce lokið

Talant Dujshebaev, Spánverjinn sem fæddist í Kirgistan, hefur látið af störfum hjá pólska liðinu Industria Kielce eftir tólf ára starf sem þjálfari liðsins. Samningur hans við félagið átti að renna út næsta sumar. Dujshebaev tók við sem þjálfari franska karlalandsliðsins...

Leikmenn knúðu fram frí með því að syngja fyrir þjálfarann

Leikmenn Füchse Berlín fá tveggja daga frí eftir 28:26 sigur á lærisveinum Guðjóns Vals Sigurðssonar í VfL Gummersbach í þýsku 1. deildinni í gærkvöldi. Mathias Gidsel, stórstjarna Füchse, segir að leikmenn hafi biðlað til þjálfarans Nicolej Krickau með söng. „Við...

Einstakur heimsmeistari lætur staðar numið

Nikolaj Øris, leikmaður Bjerringbro-Silkeborg til 22 ára, hefur tilkynnt að hann leggi skóna á hilluna að loknu yfirstandandi tímabili. Øris er fertugur og varð tvívegis heimsmeistari með danska landsliðinu. Hægri skyttan er einstök að því að leyti að hafa verið...
- Auglýsing -

Kári framlengir á Seltjarnarnesi

Kári Kvaran, leikmaður Gróttu, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2028. Kári er 24 ára vinstri hornamaður. Hann hefur verið í stóru hlutverki hjá Gróttu undanfarin ár og hefur alls leikið 74 leiki. Á nýafstöðnu...

Kapphlaupið hefst á Hlíðarenda í kvöld

Fyrsti úrslitaleikur Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla verður háður í kvöld í N1-höll Vals á Hlíðarenda. Viðureignin hefst klukkan 19.30 og verður í beinni útsendingu á Handboltapassanum og eflaust í opinni dagskrá hjá Símanum. Ellefu dagar eru...

ÍR svarar umfjöllun Handkastsins

Stjórn handknattleiksdeildar ÍR hefur gefið út yfirlýsingu vegna umfjöllunar í hlaðvarpsþætti og á vefsíðu Handkastsins þar sem gert er að því skóna að landsliðskonur ÍR, þær Sara Dögg Hjaltadóttir og Matthildur Lilja Jónsdóttir, hafi viljað þjálfarann Grétar Áka Andersen...
- Auglýsing -

Íslandsvinur tekur við nýliðum norsku úrvalsdeildarinnar

Íslandsvinurinn Gintaras Savukynas og landsliðsþjálfari Litáen hefur verið ráðinn þjálfari Bergsøy Handball, nýliða norsku úrvalsdeildar karla á næstu leiktíð. Savukynas þekkir vel til í þorpinu Fosnavogi í Mæri og Raumsdal. Hann þjálfaði Bergsøy Handball frá 2013 til 2016 er...

Molakaffi: Donni, Arnór, Jóhannes, Bjarki, Einar, Monsi

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar hans í Skanderborg AGF töpuðu fyrir Mors-Thy í fjórðu umferð af sex í riðlakeppninni um meistaratitilinn í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Leikið var á heimavelli Mors-Thy sem vann með sex marka...

Endi bundinn á sigurgöngu Gummersbach – stórleikur Hauks nægði ekki

Eftir 11 sigurleiki í röð beið Gummersbach lægri hlut í kvöld í heimsókn til Füchse Berlin, 28:26, í hörkuleik í Max Schmeling Halle í Berlínarborg. Berlínarliðið komst þar með upp í annað sæti deildarinnar með 36 stig þegar fimm...
- Auglýsing -

Níu marka sigur Gróttu gegn dauflegu Stjörnuliði

Grótta vann stórsigur á Stjörnunni, 35:26, í þriðja úrslitaleik liðanna í umspili Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag. Grótta hefur þar með tvo vinninga en Stjarnan einn. Seltirninga vantar þar með einn sigur í viðbót til að vinna umspilið...

Umspil Olís kvenna 2026: leikjadagskrá og úrslit

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik sem hófst sunnudaginn 29. mars. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem keppninni vindur fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum. Leikir umspilsins verða sendir út á Handboltapassanum. Úrslit 16. apríl: Stjarnan - Grótta...

Apelgren valdi Gottfridsson þrátt fyrir hafa sagt honum upp hjá Szeged

Athygli vekur að Jim Gottfridsson var valinn í sænska landsliðið í handknattleik sem Michael Apelgren valdi í morgun vegna tveggja vináttulandsleikja Svía og Króata í næsta mánuði. Gottfridsson er án félags um þessar mundir eftir að ungverska félagið Pick...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -