- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Mayerhoffer er frábær þjálfari – var valinn framyfir Ólaf

„Þegar ákveðið var að ég hætti að sinna báðum störfum hjá félaginu var það mat okkar að Hartmut Mayerhoffer væri rétti maðurinn í þjálfarastarfið,“ sagði Raúl Alonso íþróttastjóri þýska handknattleiksliðsins HC Erlangen í gærkvöld þegar hann svaraði fyrir af...

Fimm sýna áhuga á að hlaupa í skarð Rússa

Handknattleikssambönd fimm þjóða í Evrópu hafa sýnt áhuga á að halda Evrópumót kvenna í handknattleik árið 2026. Til stóð að mótið færi fram í Rússlandi en eftir innrás Rússa í Úkraínu á síðasta ári þótti ljóst að mótið færi...

Aron: Sífellt betur ljóst hversu góð ákvörðun var að flytja heim

„Tilfinningin er góð. Mér líður afar vel og er mjög sáttur við þá ákvörðun mína að flytja heim. Með hverri vikunni sem líður þá verður mér sífellt betur ljóst hversu góð ákvörðunin var. Ég steig hárrétt skref á réttum...
- Auglýsing -

Hörður óskar eftir aðstoð vegna komu leikmanna

Þrír úkraínskir handknattleiksmenn hafa gengið til liðs við Hörð á Ísafirði. Þeir stefna á að leika með liðinu í Grill 66-deildinni í vetur. Úkraínumennirnir bætast í hópinn með þremur handknattleiksmönnum frá Lettlandi auk Japanans Kenya Kasahara sem mættur er...

Dagskráin: Tveir leikir í röð hjá ÍBV

Tveir síðustu leikir riðlakeppni Ragnarsmótsins í handknattleik karla fara fram í kvöld. ÍBV tekur þátt í báðum viðureignum.Fyrst mætir ÍBV liðsmönnum KA klukkan 18 en síðan Selfossi. Að leikjunum loknum liggur fyrir hvaða lið mætast í úrslitum á morgun...

Molakaffi: Orri, Bjarki, Haukur, Grétar, Díana, Joa, Tranborg

Orri Freyr Þorkelsson og samherjar í Sporting frá Lissabon unnu Madeira SAD á sannfærandi hátt, 33:26, í æfingaleik í gær.  Stórliðin Veszprém og Kielce skildu jöfn, 26:26, í æfingaleik að viðstöddum þúsundum áhorfenda í Veszprém í gær, 26:26. Hvorki Bjarki...
- Auglýsing -

Valsmenn lögðu nýliðana í æfingaleik

Valsarar höfðu betur í æfingaleik við nýliða Olísdeildar karla, HK, í handknattleik karla í Origohöllinni í kvöld, 26:22, eftir að hafa verið með sjö marka forskot að loknum fyrri hálfleik, 16:9. Valur var með talsverða yfirburði í fyrri hálfleik...

Aron lék við hvern sinn fingur í fyrsta leiknum með FH í 14 ár – myndir

FH-ingar unnu ÍBV í fyrsta opinbera kappleik Arons Pálmarssonar fyrir Hafnarfjarðarliðið í 14 ár nokkuð örugglega í Kaplakrika í kvöld í Hafnarfjarðarmótinu í handknattleik karla. Lokatölur voru 37:31 en tveimur mörkum munaði á liðunum að loknum fyrri hálfleik, 17:15....

ÍR hafði betur gegn Víkingi og leikur um þriðja sætið

ÍR leikur um þriðja sætið á Ragnarsmóti karla í handknattleik eftir að hafa lagt Víking, 39:37, í hröðum og fjörugum leik í Sethöllinni í kvöld. Ekki verður ljóst fyrr en annað kvöld hvaða lið verður andstæðingur ÍR-inga um bronsverðlaunin...
- Auglýsing -

Íslendingar í báðum sigurliðum upphafsleikjanna – myndskeið

Íslendingar voru í sigurliðum í tveimur fyrstu leikjum þýsku 1. deildarinnar í handknattleik karla sem hófst í kvöld, um viku fyrr en stundum áður. Teitur Örn Einarsson og samherjar í Flensburg, sem margir veðja að verði eitt liðanna í...

„Rauðu strákarnir“ eins og fiskar á þurru landi!

ÍBV mætir HB Red Boys frá Differdange í Lúxemborg í 2. umferð Evrópubikarkeppninnar í karlaflokki og fara leikir liðanna fram upp úr miðjum október. Rauðu strákarnir hafa einu sinni áður leikið gegn íslensku liði í Evrópukeppni; gegn Val í Evrópukeppni...

Magnús boðar ekki byltingu – höldum okkar stefnu

Magnús Stefánsson tók við þjálfun karlaliðs ÍBV í handknattleik í sumar. Um er ræða frumraun Magnúsar sem aðalþjálfara meistaraflokks en hann hefur verið viðloðandi þjálfun undanfarin ár eftir að keppnisskórnir voru lagðir til hliðar. M.a. var Magnús aðstoðarmaður Erlings...
- Auglýsing -

Þorvaldur verður Örnu Valgerði innan handar

Þorvaldur Þorvaldsson verður aðstoðarþjálfari kvennaliðs KA/Þórs á handknattleiksvertíðinni sem framundan er haust, vetur og í vor. Hann verður þar með Örnu Valgerði Erlingsdóttur nýráðnum þjálfara innan handar. „Er þetta afar jákvætt skref en Valdi er rétt eins og Arna...

Dagskráin: Aron mætir til leiks – Reykjavíkurlið mætast á Selfossi

Áfram verður leikið í dag á æfingamótunum tveimur, Hafnarfjarðarmótinu og Ragnarsmótinu í kvöld. Einn leikur er á dagskrá á hvoru móti. ÍBV leikur síðari leik sinn á Hafnarfjarðarmótinu, mætir FH klukkan 17.30 í Kaplakrika. Mikil eftirvænting ríkir fyrir leiknum,...

​​​​​Einn nýliði og fjórir frá Selfossi á ferð í Þýskalandi

Það verður vinstrihandarskyttan Teitur Örn Einarsson sem ríður á vaðið, er baráttan um meistaratitilinn í handknattleik í Þýskalandi, Bundesligan, hefst með tveimur leikjum í kvöld, fimmtudaginn 24. ágúst. Teitur Örn og samherjar hans hjá Flensburg Handewitt taka þá á...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -