- Auglýsing -
- Auglýsing -

A-landslið karla

- Auglýsing -

Uppselt á seinni landsleikinn við Svía

Uppselt er á síðari landsleik Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla sem fram fer á laugardaginn í Kaplakrika klukkan 17. Frá því greinir HSÍ í tilkynningu í kvöld. Enn eru til miðar á fyrri vináttulandsleikinn við Svía sem fer fram...

Hópur efnilegra leikmanna var kallaður inn á æfingu landsliðsins

Nokkur hópur yngri leikmanna var kallaður inn á æfingu landsliðsins í handknattleik karla sem fram fór fyrir hádegið í Safamýri. Ástæða þess var m.a. sú að hluti landsliðshópsins var við kappleiki með félagsliðum í gær og tókst ekki að...

HSÍ setur VIP-miða í sölu – miðinn á 25 þúsund krónur

Handknattleikssamband Íslands hefur sett sérstaka VIP-miða í sölu fyrir tvo vináttulandsleiki karlalandsliðsins gegn Svíþjóð síðar í vikunni. Einn VIP-miði kostar 24.900 krónur og inniheldur ýmis fríðindi, þeirra á meðal sæti næst keppnisvöllunum fyrir aftan varamannabekki liðanna á Hlíðarenda og...
- Auglýsing -

Nokkrar breytingar á sænska hópnum – sterkir leikmenn ekki til Íslands

Michael Apelgren, þjálfari sænska karlalandsliðsins, hefur neyðst til þess að gera nokkrar breytingar á leikmannahópi sínum fyrir tvo vináttuleiki gegn Íslandi síðar í vikunni. Alls hafa þrír öflugir leikmenn þurft að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Þeir eru Jonathan...

Ísak neyðist til að draga sig úr landsliðshópnum

Ísak Steinsson, markvörðurinn ungi hjá Drammen í Noregi, hefur neyðst til þess að draga sig úr íslenska A-landsliðshópnum fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Svíþjóð síðar í vikunni. Er hann að glíma við meiðsli og getur því ekki tekið þátt í...

Fer ekki til Kaíró til þess að skíttapa

Ef friður gefst leikur íslenska karlalandsliðið í handknattleik tvo vináttuleiki við Afríkumeistara Egyptalands í Kaíró um miðjan maí. Eins og kom fram á handbolti.is í gær endurgjalda Egyptar heimsóknina með komu hingað til lands í janúar á næsta ári...
- Auglýsing -

Vil tefla fram mínu sterkasta liði gegn Svíum

„Ég tók snemma ákvörðun um að tefla fram eins sterku liði og mögulegt væri í leikjunum við Svía,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik í dag þegar hann tilkynnti um þann hóp leikmanna sem hann ætlar að...

Tæplega helmingur miða á leikina við Svía er óseldur

Aðeins er um helmingur aðgöngumiða eftir óseldur á fyrri landsleik Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla sem fram fer í N1-höllinni á Hlíðarenda 19. mars. Enn færri, eða um 40%, aðgöngumiða standa eftir á síðari viðureignina sem leikin verður...

Þrjár breytingar á EM-hópnum fyrir Svíaleikina

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik hefur valið landsliðshópinn sem hann teflir fram í tveimur vináttuleikjum við Svía hér á landi 19. og 21. mars í N1-höllinni á Hlíðarenda og í Kaplakrika. Andri Már Rúnarsson, Bjarki Már Elísson...
- Auglýsing -

Íslenska landsliðið mætir Egyptum tvisvar ytra í maí

Íslenska landsliðið í handknattleik karla mætir egypska landsliðinu í tveimur vináttuleikjum í Kaíró um miðjan maí. Egyptar endurgjalda heimsókn íslenska landsliðsins og koma til Íslands í byrjun janúar á næsta ári til tveggja leikja, 7. og 9. janúar, ...

Landsliðshópurinn tilkynntur á mánudag – vináttuleikir í maí

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla tilkynnir í hádeginu á mánudaginn hverjir skipa landsliðshópinn sem mætir sænska landsliðinu í tveimur vináttuleikjum 19. og 21. mars. Fyrri viðureignin verður í N1-höllinni á Hlíðarenda og sú síðari í Kaplakrika. Auk þess...

Leikið við Svía á Hlíðarenda og í Kaplakrika

Vináttulandsleikir Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla fimmtudaginn 19. mars og laugardaginn 21. mars fara fram í N1-höll Valsara við Hlíðarenda og í Kaplakrika, heimavelli FH. HSÍ sagði frá þessu í morgun og jafnframt að sala aðgöngumiða á leikina...
- Auglýsing -

Vantar öflugar langskyttur og línumenn

Það er að koma að tímamótum hjá karlalandsliði Íslands í handknattleik. Landsliðsþjálfararnir Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason, sem hafa unnið saman sem landsliðsmenn og þjálfarar, verða að fara að huga að kynslóðaskiptum; finna ungar skyttur og styrkja þær...

Myndskeið: Nokkur frábær tilþrif Viktors Gísla á EM

Liðnar eru rúmar þrjár vikur síðan Evrópumótinu í handknattleik karla lauk. Handknattleikssamband Evrópu er öðru hverju að rifja upp eftirminnilegar stundir frá Evrópumótinu. M.a. hafa þeir sett saman myndskeið með nokkrum frábærum markvörslum landsliðsmarkvarðarins Viktors Gísla Hallgrímssonar. Eitt tilþrifanna...

Svíar mæta með sitt sterkasta lið til Íslands og eru sagðir í hefndarhug

Michael Apelgren hefur valið sænska landsliðshópinn sem mætir íslenska karlalandsliðinu í tveimur vináttuleikjum sem fram fara hér á landi 19. og 21. mars. Enn þá hefur handbolti.is ekki fengið staðfest hvar leikirnir fara fram en sænska handknattleikssambandið segir í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -