- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Lærisveinar Arnórs Þórs gætu farið í Evrópukeppni

Karlalið Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, kom flestum á óvart þegar liðið lagði SC Magdeburg í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar og vann í kjölfarið til silfurverðlauna eftir tap fyrir Füchse Berlín í úrslitaleiknum. Svo gæti farið að silfrið í...

Reynir Þór fór á kostum – skoraði 21 mark

Reynir Þór Stefánsson fór hamförum í viðureign með ungmennaliði MT Melsungen í viðureign liðsins við SGSH Dragons í 3. deildinni um síðustu helgi. Hann skoraði 21 mark í tveggja marka sigri MT Melsungen II á Drekunum, 38:36. Þar af...

Birgir Steinn og félagar í undanúrslit eftir sigur í oddaleik

Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof tryggðu sér sæti í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld er þeir lögðu Hammarby, 38:33, í oddaleik á heimavelli Hammarby í Stokkhólmi. Eftir tvo tapleiki í röð mættu leikmenn IK...
- Auglýsing -

Alfreð hæstánægður með bikarhelgina

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, var viðstaddur úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar þar sem Füchse Berlín fór með sigur af hólmi gegn lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarrsonar í Bergischer HC í úrslitaleiknum í Lanxess Arena í Köln í gær. Alfreð fylgdist eins og...

Molakaffi: Elvar, Guðmundur, Ísak

Elvar Ásgeirsson skoraði fimm mörk, gaf tvær stoðsendingar og var einu sinni vikið af leikvelli er Ribe-Esbjerg tapaði stórt fyrir HØJ, 39:25, í umspili dönsku úrvalsdeildarinnar í gær. Ribe-Esbjerg var á grænni grein fyrir leikinn og heldur sæti sínu...

Donni skoraði fimm mörk – Skanderborg efst í riðlinum

Skanderborg AGF, lið Kristjáns Arnar Kristjánssonar Donna, vann TTH Holstebro, 37: 30, í Holstebro í kvöld í 3. umferð annars af tveimur riðlum úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn í handknattleik. Stendur Skanderborg þar með afar vel að vígi að hálfnaðri...
- Auglýsing -

Bjarki Már markahæstur og bikarmeistari

Bjarki Már Elísson var markahæstur leikmanna One Veszprém í dag þegar liðið varð ungverskur bikarmeistari í handknattleik með öruggum sigri á Tatabánya, 34:22, í úrslitaleik í keppnishöllinni í Györ. Bjarki Már lék allan leikinn, jafnt í vörn sem sókn....

Arnór og liðsmenn hrepptu silfrið

Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson fyrrverandi landsliðsmaður þjálfar við annan mann, fékk silfurverðlaun í þýsku bikarkeppninni í handknattleik í dag. Eftir sigur á toppliði þýsku 1. deildarinnar, SC Magdeburg, reyndist Füchse Berlin ofjarl Bergischer HC í úrslitaleiknum í...

Molakaffi: Orri, Stiven, Tumi, Tryggvi, Hannes, Ólafur

Orri Freyr Þorkelsson skoraði sex mörk í öðrum sigurleik Sporting á Martimo í undanúrslitum portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik í gær, 42:28. Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahópi Benfica þegar liðið vann Águas Santas, 36:22, í síðari undanúrslitaleik liðanna í...
- Auglýsing -

Bjarki Már leikur til úrslita – Janusi Daða brást bogalistin

Bjarki Már Elísson og liðsfélagar í One Veszprém leika á morgun til úrslita í ungversku bikarkeppninni í handknattleik. Vítakeppni þurfti til þess að knýja fram sigur í undanúrslitaleik One Veszprém og Pick Szeged í dag. Úrslitin réðust eftir að...

Kvöldkaffi: Elmar, Viktor, Tjörvi, Viktor, Sveinn

Stórleikur Elmars Erlingssonar með HSG Nordhorn-Lingen dugði liðinu ekki til sigurs í kvöld í heimsókn til HSC 2000 Coburg. Elmar skoraði átta mörk úr átta skotum og gaf einnig sjö stoðsendingar í fjögurra marka tapi, 36:32. Nordhorn-Lingen er í...

Gunnar Steinn á blaði hjá IFK Kristianstad

Gunnar Steinn Jónsson er á meðal þeirra sem koma til greina í þjálfarateymi karlaliðs IFK Kristianstad. Þjálfarinn Anders Hallberg tekur við þjálfun SL Benfica í sumar og íhugar Mats Samuelsson, íþróttastjóri félagsins, nú næstu skref. Frá þessu er greint í...
- Auglýsing -

Einar Bragi lék við hvern sinn fingur – oddaleikur hjá Birgi Steini

Einar Bragi Aðalsteinsson lék við hvern sinn fingur í kvöld og lagði grunn að sigri IFK Kristianstad á HF Karlskrona, 41:35, í fjórðu og síðustu viðureign liðanna í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Einar Bragi skoraði...

Ellefti sigurinn hjá Gummersbach

Sigurganga lærisveina Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach í þýsku 1. deildinni í handknattleik hélt áfram í kvöld þegar liðið vann Leipzig, 37:31, í Leipzig. Heimaliðsins bíður hins vegar áframhaldandi lífróður fyrir áframhaldandi veru í deildinni. Liðið rekur lestina af...

Elín Klara og stöllur auðveldlega í undanúrslit

Landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar hennar hjá IK Sävehof tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn með því að leggja Skuru IK örugglega að velli, 35:29, í þriðja leik liðanna í átta liða úrslitum. Sävehof vann...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -