Okkar fólk úti

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Alfreð fær aðra leiki í stað þeirra sem duttu upp fyrir

Alfreð Gíslason og lærsveinar hans í þýska landsliðinu hafa fengið aðra vináttuleiki í stað þeirra sem duttu upp fyrir í gær eftir að covid smit kom upp hjá serbneska landsliðinu. Þýska handknattleikssambandið greindi frá því fyrir stundu að bókaður hafi...

Bjarki Már kveður Lemgo

Landsliðsmaðurinn og markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar í handknattleik, Bjarki Már Elísson, kveður Lemgo þegar samningur hans rennur út um mitt þetta ár. Lemgo staðfestir tíðindin í morgun og greinir um leið frá að samið hafi verið við eftirmann...

Molakaffi: Steinunn, Reinhardt, tveir í stað eins, slaufað, Hovden, Kohlbacher

Steinunn Hansdóttir lék með Skanderborg Håndbold í gær en tókst ekki að skora þegar liðið steinlá á útivelli á móti Nyköbing Falster, 38:25, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna í gærkvöld. Skanderborg Håndbold  er í níunda sæti af 14...
- Auglýsing -

Díana Dögg í stóru hlutverki þegar Zwickau vann sögulegt stig

Landsliðskonan Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk þegar lið hennar BSV Sachsen Zwickau gerði jafntefli í við Bald Wildungen, 19:19, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Þar með hefur BSV Sachsen Zwickau krækt í þrjú stig í...

Erlingur velur 18 leikmenn – mætir Íslendingum í Búdapest

Hollenska landsliðið, sem Eyjamaðurinn Erlingur Richardsson þjálfar, verður einn þriggja andstæðinga íslenska landsliðsins í handknattleik á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Ungverjalandi í þessum mánuði. Viðureign Hollands og Íslands fer fram í annarri umferð riðlakeppninnar 16. janúar í Búdapest...

Myndskeið: Sandra er á bakvið nærri helming markanna

Sandra Erlingsdóttir, landsliðskona í handknattleik, hefur leikið afar vel með danska handknattleiksliðinu EH Aalborg frá því að hún gekk til liðs við liðið sumarið 2020. Félagið undirstrikaði þá staðreynd þegar það greindi frá því í gær að Sandra hafi m.a....
- Auglýsing -

Hægt að kjósa Bjarka Má, Ómar Inga og Alfreð

Landsliðsmennirnir Bjarki Már Elísson og Ómar Ingi Magnússon, íþróttmaður ársins 2021, eru á meðal 10 handknattleiksmanna sem hægt að er leggja lið í kjöri á handknattleikskarli ársins í Þýskalandi fyrir árið 2021. Handknattleikssíðan handball-world stendur fyrir valinu og fer...

Bjarki Már endar árið á toppnum – meðaltal þriggja Íslendinga er jafnt

Bjarki Már Elísson, hornamaður Lemgo og íslenska landsliðsins í handknattleik, endar árið 2021 í efsta sæti á lista yfir markahæstu leikmenn þýsku 1. deildarinnar í handknattleik karla. Bjarki Már hefur skorað 116 mörk í 18 leikjum Lemgo á keppnistímabilinu....

Molakaffi: Dagur, Erlingur, Aron, Viktor Gísli, Jóhannes Berg

Dagur Sigurðsson og leikmenn japanska landsliðsins töpuðu fyrir landsliði Túnis í síðasta leik sínum á fjögurra þjóða móti í Gdansk í Póllandi í gær, 36:31. Leikurinn var lengi vel í jafnvægi og m.a. munaði aðeins einu marki að loknum...
- Auglýsing -

Bjarni Ófeigur bestur í jafnteflisleik

Bjarni Ófeigur Valdimarsson var besti leikmaður Skövde í kvöld þegar liðið gerði jafntefli á útivelli í Önnereds, 29:29, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Bjarni Ófeigur skoraði fimm mörk í níu skotum og átti tvær stoðsendingar. Skövde var fjórum mörkum undir...

Góður sigur hjá Andreu

Andrea Jakobsen og samherjar hennar í Kristianstad unnu í kvöld VästeråsIrsta HF, 24:21, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Nú hefur þráðurinn verið tekinn upp af krafti í deildinni að loknu hléi vegna heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik. Andrea skoraði...

Ágústi Elí og félögum var snúið við á miðri leið

Rúta með landsliðsmarkverðinum Ágústi Elí Björgvinssyni og samherjum hans í danska úrvalsdeildarliðinu KIF Kolding var í dag snúið við á miðri leið þegar þeir voru á leiðinni í útileik við Nordsjælland sem átti að vera síðasti leikur liðanna á...
- Auglýsing -

Molakaffi: Daníel Freyr, Aron Dagur, hætt við, Neagu, Kopljar

Daníel Freyr Andrésson náði sér ekki á strik og varði aðeins þrjú skot af þeim 12 sem komu á mark Guif gegn Malmö HK í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld. Malmö vann leikinn, 31:28, eftir að Guif var...

Stoltur yfir að vera kominn í góðra manna hóp

„Þetta er nokkuð óraunverulegt og hefur ekki alveg síast inn ennþá,“ sagði nýkjörinn íþróttamaður ársins 2021, handknattleiksmaðurinn Ómari Ingi Magnússon, þegar handbolti.is náði stuttu tali af honum í gærkvöld eftir að Ómar Ingi hafði tekið við viðurkenningu sinni. Tíundi handboltamaðurinn Ómar...

„Gríðarlega mikilvægur sigur“

„Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur,“ sagði landsliðskonan í handknattleik, Díana Dögg Magnúsdóttir, við handbolta.is eftir að lið hennar BSV Sachsen Zwickau vann HL Buchholz 08-Rosengarten, 25:24, í hörkuleik á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld en...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -