Í kvöld fer fram fyrsti leikur í viðureign Stjörnunnar og Gróttu í umspili um eitt sæti í Olísdeild kvenna. Stjarnan reynir að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu á meðan Grótta freistar þess að hrifsa sætið af Garðbæingum.
Leikurinn...
Lena Margrét Valdimarsdóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við Fram á nýjan leik í sumar að lokinni árs veru hjá Svíþjóðarmeisturum Skara HF. Handknattleiksdeild Fram segir frá væntanlegri komu Lenu Margrétar í dag.
Lena Margrét, sem er 25 ára...
Framarar eiga vafalaust eftir að naga sig í handarbökin eftir að þeim gekk sigur í greipum í fyrstu viðureigninni við deildarmeistara Vals í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Fram lék afar vel í 45...
Haukar gerðu sér lítið fyrir og lögðu ÍBV í fyrstu viðureign liðanna undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handknattleik er leikið var í Vestmannaeyjum í kvöld. Lokatölur voru 29:26. ÍBV var marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:12. Næst mætast liðin...
Undanúrslit úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik hefjast í kvöld með tveimur viðureignum, annars vegar í Vestmannaeyjum og hins vegar á Hlíðarenda. Deildarmeistarar Vals og ÍBV mæta til keppni en bæði sátu yfir í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem lauk áður...
KA/Þór hefur samið við færeysku unglingalandsliðskonurnar Agatha Kjærbek Djurhuus til næstu tveggja ára. Djurhuus kemur til Akureyrar í sumar.
Djurhuus sem er 19 ára gömul er afar efnilegur línumaður sem hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki í meistaraflokksliði...
Handknattleiksþjálfarinn Díana Guðjónsdóttir hefur samið við Fram um að taka við starfi aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna næstu þrjú árin. Auk þess mun Díana taka við þjálfun U-liðs kvenna og 3. flokks kvenna. Árum saman hefur Díana þjálfað hjá Haukum með...
KA/Þór hefur samið við Ingibjörgu Hauksdóttur markvörð. Hún kemur til Akureyrarliðsins í sumar og ætlar að standa í markinu á næstu leiktíð. Ingibjörg kemur frá norska félaginu Flint Tønsberg þar sem hún hefur staðið vaktina á milli stanganna undanfarin...
Þóra Lind Guðmundsdóttir og Aníta Rut Eggertsdóttir, leikmenn Fram, hafa báðar skrifað undir nýja samninga við handknattleiksdeild félagsins. Samningar beggja eru til næstu tveggja ára.
Þóra Lind er 18 ára vinstri hornamaður sem hefur leikið með meistaraflokki, Fram 2 í...
Jóhanna Lind Jónasdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt HK og tekur því slaginn með liðinu í Olísdeildinni á næsta tímabili. HK vann Grill 66 deildina í vor og komst þannig upp í deild þeirra bestur.
Jóhanna Lind...
Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir, efnilegur leikmaður Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið. Nýi samninguinn gildir til næstu tveggja ára, til sumarsins 2028.
Margrét Áslaug er tvítugur vinstri hornamaður sem hefur verið í stóru hlutverki með Fram 2 í Grill...
Hilmar Guðlaugsson hefur verið ráðinn afreksþjálfari kvenna hjá handknattleiksdeild Selfoss.Hilmar mun koma inn í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna með Eyþóri Lárussyni, auk þess að leiða þjálfarateymi 3. og 4. flokks kvenna.
Hilmar hefur þjálfað handknattleik í tæp þrjátíu ár og býr...
Færeyska handknattleikskonan Inga Maria Roysdóttir hefur ákveðið að framlengja samning sinn við Stjörnuna. Þetta kemur fram í tilkynningu í dag. Hún kom til Stjörnunnar frá Kyndli á síðasta sumri. Inga Maria skoraði 67 mörk í 20 leikjum í Olísdeildinni...
Norska handknattleikskonan Trude Blestrud Håkonsen hefur sagt skilið við KA/Þór eftir árs viðdvöl og náð samningi við Stjörnuna sem tekur yfir næsta keppnistímabil, 2026/2027. Stjarnan sagði frá þessum tíðindum í dag.
Håkonsen hefur skrifað undir tveggja ára samning, reyndar eins...
Fram mætir Val í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna. Það varð staðfest í kvöld eftir annan sigur Fram-liðsins á ÍR í síðari viðureign liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Lambhagahöllinni í kvöld, 29:25. Framarar unnu fyrri viðureignina, 31:27. Þar af...