Landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson varð í kvöld portúgalskur meistari í handknattleik karla með liði sínu Sporting Lissabon. Sporting vann Porto, 35:33, í síðasta leik úrslitakeppninnar um meistaratitilinn í Lissabon. Orri Freyr er fyrsti íslenski handknattleikskarlinn sem verður landsmeistari í Portúgal.
Fyrr í vor varð Sporting deildarmeistari og getur orðið bikarmeistari um næstu helgi þegar Sporting og Porto leiða á ný saman kappa sína í úrslitaleik bikarkeppninnar.
Sporting hefur aðeins tapað einum leik á keppnistímabilinu í Portúgal í deild og bikar.
Orri Freyr hefur þar með orðið landsmeistari í Noregi og í Portúgal. Fyrir tveimur árum vann hann bæði deildar- og bikarkeppni með Elverum.
Orri Freyr, sem gekk til liðs við Sporting á síðasta sumri, skoraði þrjú mörk í sigurleiknum góða í dag. Sporting var fimm mörkum yfir í hálfleik, 18:13, og tókst að standast áhlaup Porto í síðari hálfleik. Porto varð meistari á síðasta ári.
Stiven Tobar Valencia og félagar í Benfica höfnuðu í þriðja sæti deildarinnar.
Uppfærð frétt: Eins og endranær ber varlega að treysta á gloppótt minni. Orri Freyr er ekki fyrsti Íslendingurinn sem verður portúgalskur meistari í handknattleik eins og fullyrt var í fyrstu útgáfu fréttarinnar. Handbolti.is fékk ábendingu um að Brynhildur Sól Eddudóttir hafi unnið portúgalska meistaratitilinn í handknattleik með Alavarium Love Tiles vorið 2015. Var m.a. vísað til fréttar á mbl.is sem neðanritaður er e.t.v. ekki ókunnur.
Af þeim sökum hefur fréttin verið færð til betri vegar. Rétt skal vera rétt - íben.