Íslendingalið Alpla Hard HC Hard vann góðan sigur á nágrönnum sínum í Bregenz Handball, 35:30, í austurrísku 1. deildinni í handknattleik karla í dag. Leikið var í Bregenz.
Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Alpla Hard og gaf tvær...
Tinna Ósk Gunnarsdóttir, leikmaður HK, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Í tilkynningu frá handknattleiksdeild HK kemur ekki fram til hve langs tíma hún samdi.
Tinna Ósk verður þó að minnsta kosti áfram samningsbundin HK á næsta tímabili en...
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon þjálfarar 18 ára landsliðs karla í handknattleik hafa valið eftirtalda leikmenn til æfinga á höfuðborgarsvæðinu vikuna 16. - 22. mars.
Tveir af þremur markvörðum hópsins eru úr ÍBV, Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli...
Framarar í liði tvö skoruðu þrjú síðustu mörkin og tryggðu sér sigur á Fjölni, 32:31, í Grill 66-deild karla í handknattleik í gærkvöld. Leikið var í Fjölnishöllinni en um var að ræða aðra viðureign í 20. umferð deildarinnar. Kristófer...
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla tilkynnir í hádeginu á mánudaginn hverjir skipa landsliðshópinn sem mætir sænska landsliðinu í tveimur vináttuleikjum 19. og 21. mars. Fyrri viðureignin verður í N1-höllinni á Hlíðarenda og sú síðari í Kaplakrika.
Auk þess...
Þýski landsliðsmaðurinn og vinstri hornamaðurinn Rune Dahmke hefur skrifað undir nýjan samning við THW Kiel til eins árs, út leiktíðina 2027. Dahmke fylgdi þar með í fótspor Domagoj Duvnjak og Hendrik Pekeler.
Arnór Atlason þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins TTH Holstebro verður...
KA settist í fjórða sæti Olísdeildar karla eftir 17 marka sigur á heillum horfnum leikmönnum Stjörnunnar, 38:21, í síðasta leik 20. umferðar. Leikið var á heimavelli Stjörnunnar sem var níu mörkum undir þegar fyrri hálfleikur var að baki, 20:11.
KA-menn...
Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev hafa valið hóp leikmanna til æfinga á höfuðborgarsvæðinu 16. - 19. mars. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu en nánara skipulag kemur inn á Abler þegar nær dregur, segir í tilkynningu HSÍ. Æfingarnar eru...
Auk viðureignar Stjörnunnar og KA í Olísdeild karla sem hefst klukkan 18.30 í kvöld eru tvær umferðir eftir af deildarkeppninni. Tvær síðustu umferðirnar verða leiknar mánudaginn 9. mars og fimmtudaginn 12. mars.
Í kvöld:Stjarnan - KA, kl. 18.30.
Næst síðasta umferð...
Á árlegu kjöri íþróttafólks Gróttu síðastliðinn þriðjudag voru hjónin Bernódus Sveinsson og Kristín Björg Svövudóttir útnefnd sjálfboðaliðar ársins af Handknattleiksdeild Gróttu.
„Þau hafa bæði unnið lengi og mikið óeigingjarnt starf fyrir handboltann í Gróttu og hafa hlotið bronsmerki félagsins. Undantekningalaust...
Sigursteinn Arndal þjálfari FH sat uppi í stúku og fylgdist með liði sínu þegar það vann nauman sigur á Aftureldingu, 30:29, í Kaplakrika í 20. umferð Olísdeildar karla í gærkvöld. Aron Pálmarsson stýrði FH-liðinu í fyrsta sinn sem aðalþjálfari,...
Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæma í Palau Blaugrana í Barcelona næsta miðvikudag viðureign Barcelona og HC Eurofarm Pelister í síðustu umferð B-riðils Meistaradeildar Evrópu.
Leikurinn á miðvikudaginn verður önnur viðureignin á skömmum tíma sem þeir...
Barcelona varð fyrst liða í kvöld til þess að vinna Evrópumeistara SC Magdeburg í riðlakeppni Meistaradeildar karla í handknattleik er liðin mættust í GETEC Arena í næstsíðustu umferð riðlakeppninnar. Lokatölur, 36:29, fyrir Viktor Gísla Hallgrímsson og liðsfélaga í spænska...
Framarar og FH-ingar hleyptu enn meiri spennu í toppbaráttu Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. Framarar skelltu toppliði Vals í N1-höllinni á Hlíðarenda með átta marka mun, 35:27, og FH lagði Aftureldingu eftir æsilegan endasprett sigurmarks Jakobs Martins Ásgeirssonar...
Julian Köster skoraði sigurmark Gummersbach tíu sekúndum fyrir leikslok í mikilvægum sigri á Lemgo í toppbaráttu þýsku 1. deildarinnar á heimavelli í kvöld, 28:27. Hinsvegar mátti engu muna að gestirnir í Schwalbe Arena jöfnuðu metin á síðustu andartökum viðureigninnar....