- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66-kvenna

- Auglýsing -

Sebastian ráðinn til þriggja ára hjá Aftureldingu

Sebastian Alexanderson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Aftureldingar í handknattleik. Ekki er tjaldað til einnar nætur því Sebastian skrifaði undir þriggja ára samning við félagið. Sebastian hefur tvö síðustu ár þjálfað kvennalið Víkings í Grill 66-deildinni, þeirri sömu og...

Sara Kristín tekur áfram slaginn með Fjölni

Sara Kristín Pedersen hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Fjölni og leikur því áfram með liðinu í Grill 66 deildinni á næsta tímabili. Sara Kristín er aðeins 18 ára gömul en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með...

Afturelding fær liðsauka frá Stjörnunni

Rakel Dórothea Ágústsdóttir hefur samið við handknattleiksdeild Aftureldingar um að leika með liðinu næstu tvö árin. Rakel kemur til Aftureldingar frá Stjörnunni hvar hún hefur leikið síðustu þrjú ár. Rakel Dórothea er hægri handar skytta sem er uppalin hjá HK....
- Auglýsing -

Hrafnhildur Anna sá til þess að Stjarnan héldi sæti sínu

Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir markvörður Stjörnunnar sá til þess að hið gamla vígi kvennahandknattleiksins, Stjarnan, héldi áfram þátttöku í efstu deild kvenna í handknattleik á næstu leiktíð. Hún fór hamförum í marki liðsins í kvöld og reið baggamuninn í tveggja...

Umspil Olís kvenna 2026: leikjadagskrá og úrslit

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik sem hófst sunnudaginn 29. mars og lauk miðvikudaginn 29. apríl. Dagskráin var uppfærð eftir því sem keppninni vatt fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum. Leikir umspilsins voru sendir út á...

Stjarnan og Grótta leika til úrslita í kvöld

Stjarnan og Grótta mætast í úrslitaleik um sæti í Olísdeild kvenna í Hekluhöllinni klukkan 19.30 í kvöld. Liðin standa jöfn eftir fjórar viðureignir í úrslitum umspils Olísdeildar, hvort þeirra hefur tvo vinninga. Leikið verður til þrautar í Hekluhöllinni í...
- Auglýsing -

Fimmtán ára skrifar undir hjá Gróttu

Soffía Helen Sölvadóttir, bráðefnilegur markvörður Gróttu, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við félagið. Hann gildir til næstu tveggja ára, til sumarsins 2028. Soffía Helen er einungis 15 ára gömul en hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað sína fyrstu meistaraflokksleiki...

Stórsigur Stjörnunnar – oddaleikur á miðvikudag

Oddaleikur verður á milli Stjörnunnar og Gróttu um keppnisrétt í Olísdeild kvenna í handknattleik. Stjarnan jafnaði metin í úrslitum liðanna í umspilinu í dag með stórsigri í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi, 36:24, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í...

Níu marka sigur Gróttu gegn dauflegu Stjörnuliði

Grótta vann stórsigur á Stjörnunni, 35:26, í þriðja úrslitaleik liðanna í umspili Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag. Grótta hefur þar með tvo vinninga en Stjarnan einn. Seltirninga vantar þar með einn sigur í viðbót til að vinna umspilið...
- Auglýsing -

Þriðja viðureign Stjörnunnar og Gróttu

Stjarnan og Grótta mætast í þriðja sinn í umspili Olísdeildar kvenna í dag. Að þessu sinni verður leikið í Hekluhöllinni í Garðabæ. Stefnt er að því að flautað verði til leiks klukkan 16.Liðin hafa unnið sinn leikinn hvort en...

Stjarnan jafnaði metin – spenna í umspilinu

Stjarnan jafnaði metin í einvíginu við Gróttu í umspili Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag, 26:22. Staðan var 13:10 Stjörnunni í hag að loknum fyrri hálfleik. Leikið var í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Hvort lið hefur þar með unnið einn leik...

Grótta fór með sigur úr býtum í fyrsta úrslitaleiknum

Grótta hrósaði sigri í fyrsta úrslitaleiknum við Stjörnuna í úrslitum umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik í kvöld í Hekluhöllinni í Garðabæ. Lokatölur voru 23: 21. Elísabet Ása Einarsdóttir innsiglaði sigur Gróttu átta sekúndum fyrir leikslok. Næsta viðureign liðanna fer...
- Auglýsing -

Gengur alfarið til liðs við Víking

Markvörðurinn Þórdís Idda Ólafsdóttir er gengin alfarið í raðir Víkings Reykjavík, þar sem hún lék að láni frá Fram á nýafstöðnu tímabili. Þórdís Idda skrifaði undir tveggja ára samning við Víkinga. Hún er 18 ára gömul og lék tvo leiki...

Áfram er penninn á lofti í Mosfellsbæ

Handknattleiksdeild Aftureldingar stendur í ströngu þessa dagana. Þrír leikmenn hafa nýverið gengið til liðs við kvennaliðið og annað eins af leikmönnum hafa framlengt samninga sína. Nú bætist Ásdís Halla Helgadóttir í hóp þeirra síðarnefndu. Ásdís Halla er 19 ára línumaður...

Dagskráin: Barist um sæti í Olísdeildinni

Í kvöld fer fram fyrsti leikur í viðureign Stjörnunnar og Gróttu í umspili um eitt sæti í Olísdeild kvenna. Stjarnan reynir að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu á meðan Grótta freistar þess að hrifsa sætið af Garðbæingum. Leikurinn...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -