Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ í dag. Aron virðist hafa hlaupið á sig eftir að viðureign Hauka og FH í undanúrslitum Olísdeildar karla lauk síðasta föstudag.
„Aganefnd barst skrifleg skýrsla...
Orfeus Andreou og HK hafa ákveðið að framlengja samstarf sitt. Andreou kom til HK í byrjun febrúar eftir að hafa verið helsta driffjöður handknattleiksins hjá Víði Garði um árabil.
Ekki kemur fram í tilkynningu HK til hversu langs tíma nýr...
Handknattleiksdeild Víkings úr Reykjavík hefur samið við Gunnar Hrafn Pálsson um að leika með liðinu á næsta tímabili. Hann kemur til liðsins frá Gróttu. Víkingur vann Grill 66 deildina á nýafstöðnu tímabili og leikur því í Olísdeildinni á því...
Færeyingurinn Sveinur Olafsson leikur ekki áfram með Aftureldingu á næsta tímabili. Samningur hans er á enda runninn og hyggst Sveinur flytja til Danmerkur og sameina þar handboltaiðkun og nám.
Staðfesti hann tíðindin í samtali við Handkastið. Sveinur er 23 ára...
Handknattleiksdeild HK og Katrín Hekla Magnúsdóttir hafa skrifað undir nýjan tveggja ára samning. Katrín Hekla er vinstri hornamaður, fædd árið 2005 og spilaði í yngri flokkum hjá HK.
„Katrín Hekla hefur leikið með meistaraflokki félagsins síðastliðin 5 ár. Síðastliðin þrjú...
FH lagði Hauka í fjórðu viðureign Hafnarfjarðarliðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik í gærkvöld, 36:35. Lokasekúndur leiksins voru dramatískar en Daníel Freyr Andrésson markvörður FH sá til þess að ekki kæmi til framlengingar með því að verja skot...
Eftir sex ára fjarveru hefur handknattleiksmaðurinn Hjörtur Ingi Halldórsson gengið á ný til liðs við Hauka. Allt síðan Hjörtur Ingi, sem er 27 ára gamall, kvaddi félagið fyrir sex árum hefur hann leikið með HK þar sem hann hefur...
FH vann Hauka eftir dramatískar lokasekúndur í fjórðu viðureign liðanna í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld, 36:35. Haukar fengu tvö opin marktækifæri á síðustu sekúndum leiksins til þess að jafna metin og knýja fram framlengingu. Allt kom fyrir...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum.
Leikir úrslitakeppninnar eru sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...
Eiður Rafn Valsson, leikmaður Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2029. Hann er uppalinn Framari og varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili.
Eiður Rafn er tvítugur hægri hornamaður sem hefur átt...
Fjórða viðureign Hauka og FH í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik verður háð í kvöld í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Flautað verður til leiks klukkan 19.
FH hefur tvo vinninga en Haukar einn. Síðarnefnda liðið þarf á sigri að...
Hans Jörgen Ólafsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Aftureldingu. Hans Jörgen, sem er frá Selfossi, hefur leikið með Stjörnunni undanfarin tvö ár en var áður með uppeldisfélagi sínu.
Hans Jörgen er 22 ára gamall. Hann var markahæsti leikmaður...
FH vann sanngjarnan sigur á Haukum í þriðja undanúrslitaleik Hafnarfjarðarliðanna í úrslitakeppni Olísdeildar karla, 27: 23, í Kaplakrika í kvöld. FH hefur þar með tvo vinninga og Haukar einn. Leikmenn Hauka mæta með bakið upp við vegg á heimavöll...
Valur lagði KA í þriðja og síðasta sinn í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í N1-höllinni í kvöld. Lokatölur, 38:34. Í hálfleik skakkaði þremur mörkum á liðunum, 19:16, Val í vil.Valsmenn leika þar með til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn annað...
HK hefur samið við danska leikmanninn Andrew Wisman sem er fæddur árið 2004 og kemur upp úr öflugu akademíunni hjá Nordsjælland. Samningurinn HK og Wisman er til tveggja ára.
Wisman hefur spilað með Nordsjælland síðustu tvö tímabil en var í...