Athygli vekur að Jim Gottfridsson var valinn í sænska landsliðið í handknattleik sem Michael Apelgren valdi í morgun vegna tveggja vináttulandsleikja Svía og Króata í næsta mánuði. Gottfridsson er án félags um þessar mundir eftir að ungverska félagið Pick...
Pólski þjálfarinn Stanislaw Majorek er látinn, 88 ára að aldri. Majorek var þjálfari pólska karlalandsliðsins þegar liðið vann til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Montréal í Kanada árið 1976.
Frá þessu segir í pólskum fjölmiðlum, þar sem kemur fram að hann...
Mathias Gidsel, besti handboltamaður heims undanfarin þrjú ár, verður í forgrunni í fyrsta þætti nýrrar syrpu heimildaþáttaraðarinnar Leyndardómar fortíðarinnar sem danska ríkisútvarpið hefur veg og vanda af.
Í þáttunum er kafað djúpt í fjölskyldusögur þekktra Dana og verður röðin komin...
Ungverski markvörðurinn Roland Mikler hefur skrifað undir nýjan samning við ungverska félagið OTP Bank-Pick Szeged sem gildir í eitt ár. Mikler er 41 árs og verður orðinn 42 ára þegar samningurinn er á enda næsta sumar.
Hann er Íslendingum vel...
Danska félagið Aalborg Håndbold hefur í samstarfi við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, World Food Programme (WFP), ákveðið að spila í sérstökum keppnistreyjum í leik sínum gegn Fredericia HK í efri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar laugardaginn 2. maí.
Leikmenn Aalborg munu ekki bera...
Norður-Makedóninn Stevce Alusosvski er ekki lengur þjálfari ríkjandi meistara RK Eurofarm Pelister. Alusovski, sem þjálfaði karlalið Þórs á Akureyri í rúmt ár frá 2021 til 2022, var einungis ráðinn þjálfari Eurofarm Pelister í janúar síðastliðnum og entist því aðeins...
Emil Nielsen, einn besti ef ekki besti markvörður heims, segir nokkuð skondna ástæðu liggja að baki því að hann hafi ákveðið að velja handbolta fram yfir fótbolta á sínum yngri árum.
Nielsen er 29 ára gamall aðalmarkvörður danska landsliðsins og...
Íslendingalið SC Magdeburg átti ekki góða helgi þar sem það tapaði báðum leikjum sínum um úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar. Í þokkabót voru Felix Claar og Albin Lagergren, sænskir leikmenn liðsins, rændir eigum sínum.
Magdeburg hafnaði í fjórða sæti bikarkeppninnar eftir að...
Lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer HC gerðu sér lítið fyrir og unnu Evrópumeistara SC Magdeburg í undanúrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í kvöld, 31:30. Úrslitin réðust ekki fyrr en að lokinni framlengingu og vítakeppni sem Bergischer HC vann, 5:4.
Magdeburg...
Hollenska handknattleikskonan Estavana Polman hefur ákveðið að leggja keppnisskóna á hilluna í sumar. Polman var um skeið ein allra besta handknattleikskona Evrópu og var burðarás hollenska landsliðsins sem varð heimsmeistari 2019.
Eftir að Polman sleit krossband í hné sumarið 2020...
Henrik Møllgaard, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsfyrirliði, verður aðstoðarþjálfari stórmeistaralandsliðs Danmerkur í handknattleik karla. Frá þessu segir á vef TV2 í Danmörku. Møllgaard er 41 árs gamall og er sem stendur aðstoðarþjálfari franska meistaraliðsins PSG.
Møllgaard lék sinn síðasta landsleik í...
Josip Sarac, leikmaður Tatabánya KC í Ungverjalandi, hefur verið greindur með hvítblæði. Sarac er króatískur landsliðsmaður og vann meðal annars til silfurverðlauna með liðinu á EM 2020.
Þessu greinir pólski handboltablaðamaðurinn Maciej Wosz á X-aðgangi sínum og getur þess að...
Samtök evrópsks handknattleiksfólks, EHPU, hafa gefið það út að þau standi þétt við bakið á Jim Gottfridsson eftir að samningi hans hjá ungverska félaginu Pick Szeged var sagt upp einhliða.
Gottfridsson lýsti yfir óánægju sinni eftir að Szeged sagði samningi...
Althea Reinhardt, markvörður Odense Håndbold og danska landsliðsins, varð fyrir því óláni að fá skot í höfuðið í upphitun fyrir leik liðsins gegn Horsens í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi.
TV 2 Sport greinir frá því að Reinhardt hafi gengið...
Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, vakti í gær athygli á ansi óvenjulegu marki sem var skorað í ungmennaflokki karla í Hondúras á dögunum.
„Er þetta frumlegasta mark sem þið hafið séð?“ var spurt á samfélagsmiðlum IHF og voru viðbrögðin misjöfn.
Í athugasemdakerfinu voru nokkrir...