- Auglýsing -
Dregið verður í 16 liða úrslit í Powerade bikarkeppni kvenna mánudaginn 14. október kl. 14 á skrifstofu HSÍ. Beint streymi verður frá drættinum á miðlum HSÍ.
Fulltrúum félaganna er velkomið að vera á staðnum þegar dregið verður.
Dregið verður til sex viðureigna því aðeins eru 14 lið skráð til leiks.
Tvö lið sitja hjá: Valur, Íslands-, bikar- og deildarmeistarar og Haukar sem taka þátt í Evrópubikarkeppninni.
Nöfn eftirfarandi liða verða í skálunum sem dregið verður úr:
Afturelding, FH, Fjölnir, Fram, Grótta, HK, ÍBV, Víkingur, ÍR, KA/Þór, Selfoss, Stjarnan.
Sjá einnig:
- Auglýsing -