- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66-karla

- Auglýsing -

Myndskeið: Rautt og blátt spjald fyrir olnbogaskot á Ísafirði

Rautt spjald og blátt fóru á loft á Torfnesi í gærkvöld þegar Hörður og Þór mættust í fyrsta sinn í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla. Eftir liðlega 13 mínútna leik var Endijs Kusners, leikmaður Harðar, rekinn af leikvelli fyrir að...

Hörður hafði betur – Maier var Þór þrándur í götu

Hörður vann fyrstu viðureignina við Þór í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla í handknattleik á Torfnesi í kvöld, 28:25, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 14:10. Næsta viðureign liðanna verður í Höllinni á Akureyri á...

Dagskráin: Umspilið hefst á Ísafirði í kvöld

Úrslitakeppni Íslandsmótsins í handknattleik hefst í kvöld þegar fyrsti leikurinn fer fram í umspili Olísdeildar karla. Leikmenn Harðar á Ísafirði og Þórs á Akureyri ríða á vaðið í undanúrslitum í íþróttahúsinu á Torfnesi. Flautað verður til leiks klukkan 19.30....
- Auglýsing -

Grill 66-deild: Benedikt Emil varð markahæstur

Benedikt Emil Aðalsteinsson, leikmaður ungmennaliðs Víkings, varð markakóngur Grill 66-deildar karla en keppni í deildinni lauk í síðustu viku. Benedikt Emil skoraði 118 mörk í 18 leikjum, eða nærri 6,6 mörk að jafnaði í leik. ÍR-ingurinn Hrannar Ingi Jónsson...

Hörður vann síðasta leikinn og mætir Þór

Hörður á Ísafirði vann síðasta leikinn sem fram fór í Grill 66-deild karla á keppninstímabilinu í kvöld. Harðarmenn lögðu ungmennalið HK, 37:31, á Torfnesi eftir að hafa verið sex mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik.Hörður hafnaði í fjórða sæti...

ÍR-ingar í hóp þeirra bestu á ný – karla og kvennaliðin saman í efstu deild í fyrsta sinn í 9 ár

ÍR hefur endurheimt sæti sitt í Olísdeild karla í handknattleik eftir eins árs veru í Grill 66-deildinni. Eftir spennandi endasprett í deildinni þar sem kapphlaupið um beinan flutning upp í Olísdeildina stóð á milli ÍR og Fjölnis höfðu ÍR-ingar...
- Auglýsing -

Fram U er deildarmeistari í Grill 66-deild karla

Ungmennalið Fram varð deildarmeistari í Grill 66-deild karla og fékk sigurlaun sín afhent í dag eftir að síðustu leikjum deildarinnar lauk. Fram tapaði fyrir ungmennaliði, 25:22, í lokaumferðinni á heimavelli, í Lambhagahöllinni. Tapið kom ekki veg fyrir öruggan sigur...

Dagskráin: Lokaumferðin – hvaða lið fer upp í Olísdeild?

Síðasta umferð Grill 66-deildar karla fer fram í dag. Ungmennalið Fram hefur fyrir nokkru síðan tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Liðið fer hinsvegar ekki upp um deild. Baráttan um sætið í Olísdeildinni stendur á milli ÍR og Fjölnis. Eitt stig skilur...

Grill 66karla: Hörður fór með bæði stigin frá Ásvöllum

Harðarmenn frá Ísafirði halda sig í humátt á eftir ÍR og Fjölni í toppbaráttu Grill 66-deildar karla. Þeir unnu ungmennalið Hauka í dag með 15 marka mun, 40:25, á Ásvöllum í Hafnarfirði í síðasta leik 17. og næst síðustu...
- Auglýsing -

Dagskráin: Leikir í Grill 66-deildum kvenna og karla

Síðasta umferð Grill 66-deildar kvenna verður leikin í dag. Lið Selfoss hefur fyrir nokkru síðan tryggt sér deildarmeistaratitilinn og þar með sæti í Olísdeildinni á næstu leiktíð. Grótta, Víkingur og FH taka þátt í umspili Olísdeildar ásamt Aftureldingu. Næst síðustu...

Grill 66karla: Aðeins eins stigs munur á ÍR og Fjölni fyrir síðustu leikina

Áfram er aðeins eins stigs munur á ÍR og Fjölni í kapphlaupi liðanna um sæti í Olísdeildinni í handknattleik karla eftir leiki dagsins í Grill 66-deild karla. ÍR er einu stigi ofar fyrir lokaumferðina sem fram fer á fimmtudaginn....

Tryggja sér krafta fimm efnilegra pilta

Handknattleiksdeild Vals samdi nú á dögunum við fimm efnilega unglingalandsliðsmenn sem leika með félaginu. Daníel Örn Guðmundsson (nr. 11 á mynd) semur til 3ja ára eða til 2027. Dagur Leó Fannarsson (nr. 6 á mynd), Daníel Montoro (nr. 10 á...
- Auglýsing -

Dagskráin: Hver hreppir annað sæti og hvaða lið fellur?

Síðasta umferð Olísdeildar kvenna fer fram í dag með fjórum viðureignum. Valur er fyrir nokkru orðinn deildarmeistari og fékk sigurlaun sín afhent fyrir viku á heimavelli. Engu að síður ríkir víða eftirvænting fyrir leikjum lokaumferðarinnar. Allir leikir Olísdeildar kvenna hefjast...

Fleiri efnilegir Framarar skrifa undir samninga

Stjórnendur handknattleiksdeildar Fram halda ótrauðir áfram að skrifa undir samning við efnilega leikmenn félagsins. Daníel Stefán Reynisson bætist í hóp þeirra sem fest hefur nafn sitt á blað og skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Fram. Daníel Stefán er...

Grill 66karla: Sætaskipti eftir leikinn á Hlíðarenda

Ungmennalið Vals vann ungmennalið Hauka með sjö marka mun, 39:32, í N1-höll Valsara í Grill 66-deild karla í handknattleik í kvöld. Leikurinn fór fram í N1-höll Valsara á Hlíðarenda. Staðan var 19:17, að loknum fyrri hálfleik, Valsmönnum í vil. Með...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -