- Auglýsing -
- Auglýsing -

Útlönd

- Auglýsing -

Gidsel í aðalhlutverki í sjónvarpsþætti

Mathias Gidsel, besti handboltamaður heims undanfarin þrjú ár, verður í forgrunni í fyrsta þætti nýrrar syrpu heimildaþáttaraðarinnar Leyndardómar fortíðarinnar sem danska ríkisútvarpið hefur veg og vanda af. Í þáttunum er kafað djúpt í fjölskyldusögur þekktra Dana og verður röðin komin...

Íslendingabaninn hvergi nærri hættur

Ungverski markvörðurinn Roland Mikler hefur skrifað undir nýjan samning við ungverska félagið OTP Bank-Pick Szeged sem gildir í eitt ár. Mikler er 41 árs og verður orðinn 42 ára þegar samningurinn er á enda næsta sumar. Hann er Íslendingum vel...

Engin nöfn leikmanna eða styrktaraðila á treyjunni

Danska félagið Aalborg Håndbold hefur í samstarfi við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, World Food Programme (WFP), ákveðið að spila í sérstökum keppnistreyjum í leik sínum gegn Fredericia HK í efri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar laugardaginn 2. maí. Leikmenn Aalborg munu ekki bera...
- Auglýsing -

Fyrrverandi þjálfari Þórs entist ekki lengi

Norður-Makedóninn Stevce Alusosvski er ekki lengur þjálfari ríkjandi meistara RK Eurofarm Pelister. Alusovski, sem þjálfaði karlalið Þórs á Akureyri í rúmt ár frá 2021 til 2022, var einungis ráðinn þjálfari Eurofarm Pelister í janúar síðastliðnum og entist því aðeins...

Gat ekki staðið úti í mínus sex gráðum í desember

Emil Nielsen, einn besti ef ekki besti markvörður heims, segir nokkuð skondna ástæðu liggja að baki því að hann hafi ákveðið að velja handbolta fram yfir fótbolta á sínum yngri árum. Nielsen er 29 ára gamall aðalmarkvörður danska landsliðsins og...

Leikmenn SC Magdeburg rændir

Íslendingalið SC Magdeburg átti ekki góða helgi þar sem það tapaði báðum leikjum sínum um úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar. Í þokkabót voru Felix Claar og Albin Lagergren, sænskir leikmenn liðsins, rændir eigum sínum. Magdeburg hafnaði í fjórða sæti bikarkeppninnar eftir að...
- Auglýsing -

Lærisveinar Arnórs Þórs lögðu toppliðið í undanúrslitum

Lærisveinar Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer HC gerðu sér lítið fyrir og unnu Evrópumeistara SC Magdeburg í undanúrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í kvöld, 31:30. Úrslitin réðust ekki fyrr en að lokinni framlengingu og vítakeppni sem Bergischer HC vann, 5:4. Magdeburg...

Molakaffi: Polman, Garabaya, Lucin

Hollenska handknattleikskonan Estavana Polman hefur ákveðið að leggja keppnisskóna á hilluna í sumar. Polman var um skeið ein allra besta handknattleikskona Evrópu og var burðarás hollenska landsliðsins sem varð heimsmeistari 2019. Eftir að Polman sleit krossband í hné sumarið 2020...

Møllgaard verður aðstoðarþjálfari danska landsliðsins

Henrik Møllgaard, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsfyrirliði, verður aðstoðarþjálfari stórmeistaralandsliðs Danmerkur í handknattleik karla. Frá þessu segir á vef TV2 í Danmörku. Møllgaard er 41 árs gamall og er sem stendur aðstoðarþjálfari franska meistaraliðsins PSG. Møllgaard lék sinn síðasta landsleik í...
- Auglýsing -

Greindist með hvítblæði

Josip Sarac, leikmaður Tatabánya KC í Ungverjalandi, hefur verið greindur með hvítblæði. Sarac er króatískur landsliðsmaður og vann meðal annars til silfurverðlauna með liðinu á EM 2020. Þessu greinir pólski handboltablaðamaðurinn Maciej Wosz á X-aðgangi sínum og getur þess að...

Standa þétt við bakið á Gottfridsson

Samtök evrópsks handknattleiksfólks, EHPU, hafa gefið það út að þau standi þétt við bakið á Jim Gottfridsson eftir að samningi hans hjá ungverska félaginu Pick Szeged var sagt upp einhliða. Gottfridsson lýsti yfir óánægju sinni eftir að Szeged sagði samningi...

Hlaut höfuðhögg í upphitun og fór grátandi af velli

Althea Reinhardt, markvörður Odense Håndbold og danska landsliðsins, varð fyrir því óláni að fá skot í höfuðið í upphitun fyrir leik liðsins gegn Horsens í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi. TV 2 Sport greinir frá því að Reinhardt hafi gengið...
- Auglýsing -

Myndskeið: Hefur svona mark verið skorað áður?

Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, vakti í gær athygli á ansi óvenjulegu marki sem var skorað í ungmennaflokki karla í Hondúras á dögunum. „Er þetta frumlegasta mark sem þið hafið séð?“ var spurt á samfélagsmiðlum IHF og voru viðbrögðin misjöfn. Í athugasemdakerfinu voru nokkrir...

Færeyingar verða án síns besta leikmanns í umspilsleikjum HM

Elias Ellefsen á Skipagøtu, fremsti handknattleiksmaður Færeyinga um þessar mundir, getur ekki leikið með landsliði sínu í leikjunum mikilvægu við Bosníu í umspili fyrir heimsmeistaramótið um miðjan næsta mánuð. Elias hefur ekki enn jafnað sig af axlarmeiðslum sem hann...

Margreynd sænsk landsliðskona fallin frá

Theresa Claesson Andreasson, sænsk fyrrverandi landsliðskona, er látin 54 ára að aldri. Claesson Andreasson var margreynd og lék alls 89 A-landsleiki og skoraði í þeim 229 mörk undir lok síðustu aldar og í upphafi þessarar. Sænska handknattleikssambandið greindi frá og...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -